Skip to main navigation Skip to search Skip to main content

Hvaða þættir tengjast því hvort konur séu með barn sitt eingöngu á brjósti mánuði eftir fæðingu? Þversniðsrannsókn meðal kvenna á Íslandi

Translated title of the contribution: What Factors Are Associated With Exclusive Breastfeeding One Month After Giving Birth?: A Cross-Sectional Study Among Women in Iceland

Research output: Contribution to journal › Article › peer-review

Abstract

Bakgrunnur
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO)
mælir með að börn séu eingöngu á brjósti
til sex mánaða aldurs. Tíðni brjóstagjafar
á fyrsta hálfa árinu hefur ekki verið vel
lýst á Íslandi. Markmið okkar var að lýsa
brjóstagjöf meðal kvenna á Íslandi og
skoða hvaða þættir tengjast því hvort
konur séu með barn sitt á brjósti mánuði
eftir fæðingu eða ekki.
Aðferðir
Úrtak rannsóknarinnar var 1.272
konur sem eignuðust barn á tímabilinu
2015–2021. Gögnin voru fengin með
spurningalistakönnun í þversniðsrannsókn. Útkomubreytan var brjóstagjöf
mánuði eftir fæðingu og aðrar breytur
voru bakgrunns- og fæðingartengdar
breytur. Kí-kvaðrat og Fisher’s Exact próf
voru notuð til að athuga hvort marktæk
tengsl væru á milli breyta.
Niðurstöður
Um 70% kvenna voru með barn sitt
eingöngu á brjósti mánuði eftir fæðingu.
Íslenskar fjölbyrjur, búsettar á höfuðborgarsvæðinu, með hærra menntunarstig
og hærri meðaltekjur voru líklegri til að
vera með barnið sitt eingöngu á brjósti.
Konur í sjálfkrafa sótt, sem fæddu um
leggöng án þess að nýta mænurótardeyfingu voru einnig líklegri til að vera
með barn sitt eingöngu á brjósti mánuði
eftir fæðingu.
Ályktun
Niðurstöður okkar sýna að flestar konur
eru með barn sitt eingöngu á brjósti um
mánuði eftir fæðingu. Niðurstöður okkar
gefa einnig til kynna að tengsl virðast
vera milli bakgrunns- og fæðingartengdra
þátta kvenna og þess hvort þær séu eingöngu með barn sitt á brjósti. Rannsóknin
gefur tilefni til að skoða þessa þætti betur
með það að leiðarljósi að styðja betur við
brjóstagjöf kvenna.

Background
The World Health Organization (WHO)
recommends exclusive breastfeeding
for the first six months of a childs life.
Breastfeeding rates in Iceland have not
been well described. The aim of our
study was to describe breastfeeding
rates among women in Iceland and
explore factors associated with exclusive
breastfeeding at one month of age.
Method
In this cross-sectional study,
questionnaire data from 1,272 women
who gave birth between 2015 and 2021
was analyzed. The primary outcome
variable was breastfeeding at one month
postpartum and other variables were
sociodemographic and birth-related
variables. Descriptive statistics were
employed for data analysis as well as
using Chi-square and Fisher’s Exact to
test for significant differences between
the outcome variable and other variables.
Results
Of all participants, about 70% exclusively
breastfed their newborns at one month
postpartum. Women who were Icelandic,
multipara, resided in the Capital region,
had higher education, and earned
above-average wages were more likely to
exclusively breastfeed their newborns at
one month postpartum. Similarly, women
who had spontaneous onset of labor, gave
birth vaginally and without an epidural
were more likely to breastfeed their
newborns.
Conclusions
Our results suggest that most women
exclusively breastfed their babies at one
month of age. Our results also suggest
that there may be an association between
various sociodemographic- and birthrelated factors and exclusive breastfeeding
at one month postpartum. Our study
therefore indicates a need for further
exploration of these factors with the
overall aim to support breastfeeding
among women in Iceland.
Translated title of the contributionWhat Factors Are Associated With Exclusive Breastfeeding One Month After Giving Birth?: A Cross-Sectional Study Among Women in Iceland
Original languageIcelandic
Pages (from-to)30-40
Number of pages11
JournalLjósmæðrablaðið
Volume101
Issue number2
Publication statusPublished - Dec 2023

Fingerprint

Dive into the research topics of 'What Factors Are Associated With Exclusive Breastfeeding One Month After Giving Birth? A Cross-Sectional Study Among Women in Iceland'. Together they form a unique fingerprint.

Cite this