Abstract
Hjartasjúkdómar er ein aðal dánarorsök í heiminum en fáar eigindlegar rannsóknir hafa verið gerðar um reynslu einstaklinga af því að fá hjartaáfall og lítið er vitað um þá reynslu að fá hjartaáfall í kringum fimmtugt. Þessi rannsókn er hluti af stærra rannsóknarverkefni „Ungir hjartasjúklingar“ en markmið þessa hluta rannsóknarinnar var að efla þekkingu og dýpka skilning á þeirri reynslu að fá hjartaáfall í kringum fimmtugt, einkum m.t.t. einkenni hjartaáfallsins og helstu áhrifaþátta. Notuð var fyrirbærafræðileg aðferð. Tekin voru eintaklingsviðtöl við 11 þátttakendur, þar af 3 konur. Meðalaldur þátttakenda var 48 ár. Niðurstöður sýna að um helmingur þátttakenda voru sendir heim með hjartaáfall án þess að vera sendir í ítarlegri skoðun með tilliti til kransæðaþrengsla eða hjartaáfalls, en hjartaáfallið var vangreint sem einhver annar sjúkdómur vegna ungs aldurs þeirra. Þau voru með einkenni eins og mæði, þreytu, slappleika, kviðverki, brjóstsviða og veikindatilfinningu, en þetta eru minna þekkt einkenni hjartaáfalls en geta líka verið svo margt annað. Mikilvægt er að fagfólk og almenningur geri sér grein fyrir að einkenni hjartaáfalls geta verið allt önnur hjá fólki í kringum fimmtugt í samanburði við eldra fólk.
| Original language | Icelandic |
|---|---|
| Title of host publication | Rannsóknir í félagsvísindum XVII |
| Subtitle of host publication | Erindi flutt á ráðstefnu í október 2016 |
| Editors | Helga Ólafs, Thamar M. Heijstra |
| Place of Publication | Reykjavík |
| Publisher | Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands |
| Pages | 1-12 |
| Number of pages | 12 |
| ISBN (Electronic) | 978-9935-424-21-1 |
| Publication status | Published - 2016 |
| Event | Þjóðarspegillinn 2016 - Duration: 1 Oct 2016 → 1 Oct 2016 |
Publication series
| Name | Rannsóknir í félagsvísindum |
|---|---|
| Number | XVII |
Conference
| Conference | Þjóðarspegillinn 2016 |
|---|---|
| Period | 1/10/16 → 1/10/16 |
UN SDGs
This output contributes to the following UN Sustainable Development Goals (SDGs)
-
SDG 3 Good Health and Well-being
Cite this
- APA
- Author
- BIBTEX
- Harvard
- Standard
- RIS
- Vancouver