Skip to main navigation Skip to search Skip to main content

Viðhorf, þekking og reynsla ljósmæðra sem starfa á fæðingarvakt Landspítala af vatnsfæðingum: „Að yfirfæra hið jákvæða fæðingarumhverfi vatnsfæðinga yfir á allar fæðingar“

Research output: Contribution to journal › Article › peer-review

Abstract

Inngangur
Á síðustu áratugum hefur tíðni vatnsfæðinga aukist um allan heim. Þetta má
meðal annars rekja til aukinnar þekkingar
og skilnings á því að vatnsfæðingar og umgjörð þeirra auki líkur á eðlilegri fæðingu.
Á sama tíma hefur inngripatíðni í eðlilegt
fæðingarferli aukist verulega á fæðingardeildum innan sjúkrahúsa sem er áskorun
fyrir ljósmæður. Markmið rannsóknarinnar
var að skoða viðhorf, þekkingu og reynslu
ljósmæðra sem starfa á fæðingarvakt
Landspítala af vatnsfæðingum.
Efniviður og aðferðir
Rannsóknin er með blönduðu rannsóknarsniði þar sem rafrænn spurningalisti var
lagður fyrir þátttakendur sem valdir voru
með kvótaúrtaki. Stuðst var við lýsandi
tölfræði ásamt Fishers prófi við úrvinnslu
gagna í lokuðum spurningum, en þemagreiningu á svörum úr opnum spurningum.
Niðurstöður
Alls tóku 55 ljósmæður þátt sem er 83%
svarhlutfall. Í ljós kom að meirihluti ljósmæðra (60%) taldi sig hafa góða þekkingu
á verklagi um vatnsfæðingar og voru þær
líklegri til að upplifa sig öruggar þegar
konur óskuðu eftir því að fæða í vatni.
Allar ljósmæðurnar höfðu tekið á móti
barni í vatni og almennt voru viðhorf þeirra
jákvæð (90%). Í þemagreiningu voru greind
eftirfarandi yfirþemu: 1) Verndarhjúpur
fyrir truflun á eðlilegu ferli, 2) Valdeflandi andrúmsloft og mýkri fæðing, 3)
Áskoranir í umhverfinu og 4) Að styðja
val kvenna – það skiptir mestu máli.
Ályktanir
Svigrúm er til að efla þekkingu og færni
ljósmæðra á fæðingarvakt Landspítala
sem gæti orðið til að fleiri konur nýti sér
vatnsmeðferð í fæðingum. Mikilvægt er
að bæta aðstæður í kringum vatnsfæðingar
og eftirsóknarvert væri að yfirfæra hið
jákvæða fæðingarumhverfi vatnsfæðinga
yfir á allar fæðingar.

Introduction
Waterbirths have increased all over the
world, due to increased knowledge that
waterbirths increase the chances of a
normal birth. The frequency of interventions in the birth process has risen
signicantly in labour wards within
hospitals, which is a challenge for midwives. The aim of the study is to examine
the attitudes, knowledge and experience
of waterbirths among midwives working
at the National University Hospital in
Iceland’s labour ward.
Materials and Methods
A mixed method study was conducted
using a web-based survey which was
distributed to the participants selected
by quota sampling. Descriptive statistics
and Fisher’s exact tests were used to compare responses to closed questions, while
thematic analysis was used to interpret
responses to open questions.
Results
A total of 55 midwives participated,
which is an 83% response rate. Results
showed that the majority of midwives
(60%) believed they had good knowledge
of waterbirth guidelines and they were
more confident when women requested
to give birth in water. All the midwives
had delivered a baby in water and their
attitudes were generally positive (90%).
In the thematic analysis the following
main themes were identified: 1. A protective barrier against disruptions of
the normal process, 2. An empowering
atmosphere and a more gentle birth,
3. Challenges in the environment, and
4. Supporting women’s choices is what
matters most.
Conclusions
The knowledge and skills of midwives
could be further improved and may encourage women to use water during birth.
It is important to improve the conditions
surrounding waterbirths, and it would
be desirable to transfer the positive birth
environment of waterbirths to all births.
Original languageIcelandic
Pages (from-to)88-99
Number of pages12
JournalLjósmæðrablaðið
Volume102
Issue number2
Publication statusPublished - Oct 2024

Cite this